Sýnir færslur með efnisorðinu Sleek. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Sleek. Sýna allar færslur

Sleek Pout Paint| Umfjöllun

Í óðsmannsleit minni að bláum varalit um daginn endaði ég óvart á því að fjárfesta í þremur stykkjum, einn af þessum bláu varalitum fann ég á haustfjord.is en þar taldi ég mig hafa dottið aldeilis í lukkupottinn því að hann var svokallaður fljótandi varalitur og í sömu línu var til hvítur fljótandi varalitur svo að ég sá fyrir mér að þarna hefði ég nælt mér í allskyns útgáfur af bláum varalitum ef ég myndi blanda þessum bláa og hvíta saman í mismunandi hlutföllum.

Þessir varalitir eru frá Sleek og eru í fljótandi formi. Það þarf ofboðslega lítið af þeim og þeim má blanda saman á alla vegu. Að auki eru þetta svo kallaðir stains sem þýðir að þeir lita varirnar svo liturinn helst extra lengi (og varirnar eru litaðar jafnvel eftir að búið er að þvo þá af).




Ég keypti mér hvíta (Cloud 9) og bláa (Peek A Bloo) en er svo mikið dekurdýr að ég fékk þrjá aðra með til að prufa (Rosetta, Pinkini og Lava). Nú bý ég því svo vel að geta búið til allskonar blöndur og fengið út allskonar fallega varaliti. 

Það er eitthvað að þessu "Collage" forriti sem ég nota... gerir mig stundum eins og postulínsdúkku. Veit ekki hvernig ég kem í veg fyrir það. En þetta eru Rosette, Lava og Pinkini. Og mjög myglað vinnuandlit, sem sést sem betur er ekki því ég er svo nýskeind í framan út af þessu myndaforriti (myndirnir eiga að vera eins og þessi hér fyrir neðan).

Lava, Rosette, Pinkini, Peek A Bloo og Cloud 9. 

Hér blandaði ég Lava og Cloud 9 saman og fékk út þennan líka fína laxableika lit.

Svo hér er ég alveg ótrúlega hress, með úfið hár og laxableikan varalit eftir 8 klukkustunda vinnudag.

Ég hef átt Pout Paint frá Sleek áður. Ótrúlega næs varalitir (sérstaklega ef maður hefur gaman af því að blanda og tilraunast með varaliti) og það er skemmtilegast hvað þarf lítið í einu, þannig maður fer ekkert á bömmer ef maður blandar óvart hræðilegan lit, maður byrjar bara aftur.



"Haul"| Nýtt í safninu!

HæHæ!
Ég spurði ykkur um daginn á facebook hvort þið vilduð sjá annað snyrtivöru "haul" á blogginu því ég var svo sjúklega dekruð af lesanda um daginn að ég fékk annan pakka af snyrtivörum óvænt! :D
Það voru allmargir sem vildu fá að sjá hvað bættist í safnið, svo hér er bloggið!
(Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinu, er búin að fá svo mikið og búin að vera að leika mér með allt saman að ég man ekki lengur alveg hvað kom um daginn og hvað er nýtt! En hérna er allavega það sem ég veit fyrir víst að var í seinasta pakkanum:


Fékk annan Lioele l'Crét Magic varalit  frá henni!!! Þessi er gulur og verður svona ferskju/baby bleikur, svipað og sést þarna á myndinni. Sjúk í þessa- þeir eru líka mjúkir og rakagefandi eins og varasalvar svo þetta er einskonar 2 in 1 :)
Sleek kinnalitur í litnum Sunrise- Dökk rósrauður litur með helling af gylltu ívafi! Hann er mjög dökkur svo ég hef ekkert almennilega prófað hann, en hlakka til að prófa hann næsta vetur þegar maður fer aftur í þyngri og dekkri litina :) 

Ég fékk uppáhalds bronzerinn minn! Þessi er meira að segja einu númeri dekkri en þessi sem ég á (og er að verða búin með) sem er kærkomið því hinn er á mörkunum að vera of dökkur. Var mjög glöð að sjá þennan í pakkanum þar sem minn fer alveg að klárast!

Stila collectible beach palette no. 5- Sjúúúklega falleg paletta, elska litina og elska pigmentið! Kinnalitur (seashell), highlighter/bronzer (pacific coast highway) og fjórir sjúkir augnskuggar ( sand dollar, sunset, cove og bonfire). 

Annað box frá Benefit! World famous neturals- fjórir geggjaðir augnskuggar ( call my buff, kiss me i'm tipsy, it's complicated og gilt-y pleasure) Er sjúk í litina! Og með eru tveir kremaugnskuggar/grunnar, sá efri heitir my two cents og sá neðri birthday suit. Búin að leika mér aaaansi mikið með þetta litla box!

Fékk 6 varaliti! Tvo úr Kate Moss línunni frá Rimmel- nr. 8 og 19- sjúklega fallegir nude litir. Svo fékk ég tvo frá Makeup Geek (Adorable og Innocent) báðir fallega bleikir nude litir og að lokum litinn Coral Reef frá Sleek makeup (neðst í vinstra horninu) og það sést ekki á myndinni, en hann er neon kóral/ferskju bleikur- gegggjaður! Verður mögulega sumarliturinn minn í ár! 

MAC augnskuggatríó í "threesome"- ótrúlega fallegir litir. Einnig þykir mér bara sérstaklega vænt um þetta því ég á lítið sem ekkert frá MAC (á núna í heildina 3 vörur og mér voru gefnar þær allar!) en ég er voða skotin í þessu pínkuponsu litla safni mínu sem á vonandi eftir að byggjast eitthvað upp! 

NYX krem kinnalitur í litnum Rose Petal- fallega rósableikur litur- fullkomið fyrir sumarið til að fá svona "glowing" húð og falleg yfirbragð (flott fyrir þurru húðina mína!)

Stay Matte púður í translucent- við vitum öll að þetta er uppáhaldið mitt! Var að skafa restarnar úr gömlu dollunum mínum svo þetta var himnasending!

e.l.f. highlighting og concealer duo- hef lengi verið hrifin af þessum hyljara og farið í gegnum þónokkra- sérstaklega gott til að birta yfir augnsvæðinu!

Og síðast er líklega það besta!!! Fullkomið burstasett frá Sedona Lace (sem er uppáhaldsbursta-framleiðandinn minn í augnablikinu). Gaaat ekki verið ánægðari! Vantaði svo að eiga backup bursta af mínum uppáhalds augn- og andlitsburstum- maður á aldrei of mikið af burstum og ég er sjúk í þessa alla. Nokkrir sem ég hef ekki átt áður og voru sko aldeilis kærkomnir í safnið! :D 


Ég held ég sé ekki að ljúga þegar ég segi að þetta sé komið! (Ég skelli þá restinni inn ef ég man skyndilega að ég gleymdi einhverju).
Er himinlifandi- enn og aftur á ég í erfiðleikum með að þakka fyrir mig, en ég man að daginn sem ég fékk þetta var margt að ganga á afturfótunum og þessi óvænta sending gladdi mig svo óendanlega mikið<3

Jæja- þið eruð öll best!

-Kata
Glimmer og Gleði á facebook!

Febrúar uppáhalds!

Annar mánuður búinn!
Ég er sem betur fer dugleg að skipta hlutunum aðeins upp og nota ekki alltaf sömu snyrtivörurnar endalaust þar til þær klárast, ákveð oft í byrjun mánaðar að ég ætli að vera duglegri að nota hinar og þessar palettur eða vörur, svo ég er dugleg að nota allt sem ég á.
Það sem var mest notað og í mestu uppáhaldi þennan mánuðinn var eftirfarandi:


Andlit:
1. BH Cosmetics 6 colour contour&blush palette: Er búin að nota þessa rosalega mikið, bæði andlitspúðrið, hvíta púðrið (sem highlight), kinnalitina og svo síðast en ekki síst skyggingapúðrið dökkbrúna. Það er algjört himnaríki að blanda þessi púður inn í húðina, kom mér ótrúlega á óvart. 
2. Bourjois Healthy Mix Serum foundation: Létt þekjandi farði, kemur ótrúlega fallega út á húðinni. Ég er aðeins of pikký þegar kemur að fljótandi meiki, eftir að vera vön Lioele BB kreminu mínu sem ég er die hard fan af- en þetta er mjög létt og fallegt meik, og gefur manni grínlaust svona healthy glow. Þekur ekkert brjálæðislega mikið, þannig ég mæli með hyljara með. 
3. Rimmel Match Perfection hyljari: Nota hann til að fela bauga, hann er með svona "birtandi" eiginleikum svo maður virðist meira vakandi og frískur. Hef örugglega áður sett hann í uppáhalds, enda nota ég hann á hverjum einasta degi og hef gert í nokkra mánuði :)
4. NYX round lipstick í litnum Narcissus: Hef verið að nota þennan varalit svona þegar sólin lét aðeins sjá sig, aðeins að koma mér í sumargírinn. Hann er rosa fallegur, svona baby bleikur- kem pottþétt til með að nota hann helling í sólinni og sumrinu! Mjög ánægð með hann. 
5. Revlon Colorburst varalitur í litnum Petal: Einn af mínum all time uppáhalds varalitum, svona sheer nude litur með örlitlum silfruðum glansi- litar varirnar ekkert sérstaklega mikið, en gerir þær heilbrigðar og svolítið djúsí í útliti :) 

Augu:
 1. Naked Basics palettan: Hef notað þessa nánast alla dagana í febrúar (fyrir utan þá daga sem ég geri "augnskuggarúllettu") og ég eeelska þessa augnskugga! Er búin að nota alla skuggana í palettunni mjög mikið, uppáhaldsliturinn er líklega W.O.S (Walk Of Shame)- því hann er nánast akkúrat sami litur og húðin mín þannig að hann er fullkomin til þess að blanda út dökka liti, án þess að þurfa að bæta litum inní lúkkið sem maður er að gera. Allir litirnir í miklu uppáhaldi!
2. NYX augnskuggagrunnur í hvítu: Basically það sama og Jumbo blýanturinn frá NYX í Milk- nota þennan grunn alltaf þegar ég er að gera lítrík lúkk. Breytir öllu! Maður veit aldrei hvað augnskuggi hefur raunverulega upp á að bjóða fyrr en maður prófar hann á svona hvítum grunni. Og ég nota þetta rosalega mikið. 
3. LA Girl Glamour Glitter: Elska þessi glimmer frá LA Girl, á fjóra liti og hef verið að nota þá alla slatta í febrúar. Mjög falleg glimmer, alveg extra skínandi og falleg, hef líka fengið ansi mikið hrós þegar ég nota það í lúkk hvort sem það er á mér sjálfri eða öðrum. 
4. e.l.f. glimmer eyeliner: Ég notaði bara þetta undir glimmer þegar ég gerði glimmerlúkk í febrúar (annars var ég vön að nota augnháralím), en þetta er mun snyrtilegra og fljótlegra. Á svona í gylltu og svo "glæru" með smá marglituðu glimmeri útí, nota glæra undir öll lituðu glimmerin en gyllta undir gylltu glimmerin. Hjálpar öllu að klístrast við augnlokin og þornar mjög hratt. 
5. Sleek Makeup Oh So Special palettan: Elska Sleek paletturnar mínar, en þessi er í uppáhalds út af laxableika litnum í efri röðinni. Hef notað hann yfir augnlokið ansi mikið þennan mánuðinn (sumarþrá!). Elska þennan lit til að poppa upp náttúrulega lúkk, sérstaklega fallegt á grænum augum.


-Katrín María
Glimmer og Gleði á facebook!

Augnskugga-rúlletta #3 Bland!

Meira svona óvænt og gaman... er óstöðvandi "áhættufíkill" greinilega. Heeeeh!
Lenti á misskemmtilegum litum... en það er bannað að breyta, og gaman að spreyta sig á litasamsetningum sem maður hefði annars kanski ekki valið sjálfur.

Þetta var svona smá krefjandi... engin almennilega dökkur litur, en þetta hafðist. Ekkert uppáhalds augnmálningin mín samt! Haha :)

Þetta var skemmtilegra- tveir fjólubláir litir, reynadr enginn almennilegur blöndunarlitur (báðir brúnu eru frekar dökkir) en þetta endaði í einhverju nokkuð skemmtilegu shimmer fjólubláu "smokey". Gerði stór mistök og setti ferskjulitinn undir augun á mér... var ekki að virka, sést kanski ekki mikið (samt smá) á þessum myndum en á restinni af myndunum sem ég tók var ég eins og zombie, allt of veiklulegt að hafa rautt við neðri augnhárin ef það tónar ekki við efri litina. 

Mjög einkennlegt kombó hér... eldrauður, bronz og enginn dökkur litur... þessi skítagulbrúni litur fór í glóbuslínuna (við mismiklar undirtektir) og rautt yfir allt augnlok þar sem bronz litnum var svo dustað yfir til að fá shimmer í þetta! Allt í lagi lúkk svosem... dass af svörtu myndi gera lúkkið!


Ætla að reyna að vera duglegri að pósta allskonar svona sem mér dettur í hug inni á facebooksíðu Glimmer&Gleði, t.d. makeup lúkkum sem ég posta venjulega bara á instagram, neglur dagsins og mögulega allskonar svona sem mér dettur í hug hverju sinni. Þannig ef þú hefur áhuga á meiköppi, allskonar skrauti og já bara glimmeri og almennri gleði, þá endilega like-aðu G&G á facebook ;)

-Katrín María
Glimmer&Gleði á facebook!

Valentínusar- rúlletta!

Einhver af ykkur sáu kanski blogg gærdagsins, þar talaði ég um að mig langaði að reyna að gera útgáfu af Lucky Dip eins og Lauren Luke gerir á YouTube.
Ég á ekki næstum eins mikið af snyrtidóti til að velja úr þannig ég fór mínar leiðir.
Ég talaði líka um að það væri aðeins bloggstopp hjá mér, en það vill þannig til að þegar ég á erfitt eða á erfiðan dag að þá er  besta sem ég geri til að kæta mig og láta mér líða betur að mála mig og leika mér með snyrtidótið mitt. Eitt af fáu sem lætur mér líða betur, þó ekki sé nema tímabundið. Og þar sem ég var hvort sem er að búa til lúkk og leika mér eitthvað fannst mér ég alveg geta hent því í eitt blogg.

Það sem ég gerði:
-Númaraði allar paletturnar mínar
-Númeraði miða og setti í skál
-Dró fimm miða (sem vísuðu í fimm mismunandi augnskuggapalettur)
- Dró svo einn númeraðan miða fyrir hverja palettu- og taldi svo upp að augnskugganum sem var númer t.d. 6 í röðinni o.s.fv.

Þannig ég endaði með 5 mismunandi augnskugga úr 5 mismunandi palettum og þurfti að nota þá til að búa til lúkk.
Aðalástæðan fyrir því að ég ákvað að henda þessu hér inn er að mér fannst svo ótrúlega fyndið hvað ég fékk geggjað Valentínusarlega liti- og hvað ég var ótrúlega heppin hvað allt passaði saman!

Litirnir sem ég dró eru þessir með bláa plastbútnum- notaði alla

Vildi að það sæust betur bleiki og rauði liturinn, var með dökkrauðann í glóbuslínunni en hann er ekkert að pikkast upp neitt sérlega vel. 


Þetta var bara svona prufa- ákvað að deila því bara með ykkur samt.
En spurning hvernig ég get gert þetta öðruvísi- jafnvel þannig að þið sjáið prósessið betur... ef þið hafið einhverjar hugmyndir megið þið endilega láta mig vita :)
-Katrín María
Glimmer&Gleði á facebook!